top of page
Search

Draumastarfið

  • hoskuldurhauksson
  • Feb 23
  • 3 min read

Ágæta vínáhugafólk,


Í síðustu viku heimsótti ungt par mig í kjallarann. Þau voru að leita að stað til að halda trúlofunarveislu með vinum og fjölskyldu. Eftir að ég hafði sýnt þeim kjallarann spurði unga konan mig skyndilega:

„Hvernig er að vera í draumastarfinu sínu?“

Ég stóð augnablik orðlaus. Ekki vegna þess að spurningin væri óvenjuleg – heldur vegna þess að ég áttaði mig á því að ég var ekki með neitt svar á reiðum höndum.

Á yfirborðinu er þetta auðvitað algjört draumastarf. Það býður upp á ótal „Instagram“-vænar, nánast myndrænar stundir: kyrrláta vetrardaga við að klippa vínviðinn undir bláum himni, leikurinn við að sinna litlu Ouessant-kindunum okkar, einföldu ánægjuna af því að deila vínglasi og góðu samtali með félaga. En auðvitað er þetta ekki alltaf svona. Þetta er líka venjulegt fyrirtæki með öllum þeim áskorunum og pirringi sem fylgja því að reka lítið fyrirtæki.

Hvað þýðir þá „draumastarf“ í raun og veru?

Ef við gröfum aðeins dýpra virðist spurningin leiða okkur að gildum og tilgangi. Ég hef ánægju af því að vinna í sátt við náttúruna og að hugsa vel um landið sem mér hefur verið treyst fyrir. Vínekran og kjallarinn eru leikvöllur þar sem ég fæ útrás til þess að gera eitthvað skapandi.

Það skiptir mig máli að vínin okkar séu gerð með eins litlum inngripum og mögulegt er – að sem minnst sé bætt við sem ekki kemur úr þrúgunni sjálfri. Og mér finnst gott að vita að það sem ég bý til geti, þegar því er deilt á milli vina, opnað samtal sem annars hefði kannski aldrei átt sér stað.

En er það endanlegi sannleikurinn?

Ef við lítum enn dýpra sjáum við að þessi merking eru í raun bara sögur. Ég upplifi þær sem sannar en samt eru þær frásagnir – túlkanir sem við höfum sameiginlega ákveðið að trúa á.

Eins og sagnfræðingurinn Yuval Harari hefur oft bent á, byggist stór hluti hversdagslegs lífs okkar á sameiginlegum sögum. Tökum 20 franka seðilinn sem dæmi. Ég er tilbúinn að skipta á vínsflösku og litlu rauðu pappírsblaði (20 CHF) vegna þess að ég treysti því að næsti maður muni einnig taka við þessu pappírsblaði. Verðgildi þess liggur ekki í pappírnum sjálfum, heldur í sameiginlegri trú okkar á gildi þess. Ef sú trú mundi bresta, væri seðillinn ekkert annað en pappír.

Hið sama má segja um hugmyndir eins og starfsferil, fyrirtæki, árangur eða jafnvel „draumastarf“. Þetta eru hugmyndir sem lifa aðeins vegna þess að við tökum þátt í þeim. Að einhverju leyti veljum við öll þær sögur sem við lifum eftir.

Ég vel að trúa því að lífefld (biodýnamísk) ræktun hafi gildi.Ég vel að trúa því að vönduð landbúnaðarvinna skipti máli.Ég vel að trúa því að þegar vinir deili með sér vínflösku þá getur það lyft góðu samtali.

Þessar ákvarðanir eru ekki tilviljanakenndar – þær byggjast á reynslu og innsæi – en þær eru engu að síður ákvarðanir. Þær fela í sér skuldbindingu gagnvart ákveðinni sýn á heiminn og þátttöku í honum.

Kannski er „draumastarf“ ekki röð fullkominna daga, heldur daglegt líf sem er í samhljómi við söguna sem við segjum okkur sjálfum.

Með því býð ég ykkur að stíga örstutt inn í minn heim. Deilið vínsflösku með einhverjum sem ykkur þykir vænt um og kannið sögur og viðhorf hvors annars um heiminn – kannski uppgötvið þið eitthvað nýtt.


Bestu kveðjur, Höskuldur vínbóndi

 
 

Af og til segi ég frá því hvað er að gerast á býlinu hjá okkur - bara stuttar fréttir, vangaveltur og nýjungar.  Skráðu þig endilega fyrir fréttabréfinu til að geta fylgst með!

Hauksson Weine GmbH

Haupstrasse 15, 5235 Rüfenach, Switzerland

©2025 by Hauksson Weine GmbH. | Perónuvernd

bottom of page