top of page
Search

Vín eins og það átti alltaf að vera

  • hoskuldurhauksson
  • Aug 25
  • 2 min read

Þar sem ég stóð mitt á Chardonnay ekrunni minni, með garðslönguna í hendi, að vökva í þriðja sinn þetta sumarið — fjórða daginn í röð — reikaði hugurinn til heimsóknar sem ég fór í fyrir nokkru til vínbónda í Tessín.


Þér fyrirgefst ef þú hefur aldrei heyrt af Tankred Götsch. En ef þú ert nörd í skógarlandbúnaði (agroforestry), kannastu ef til vill við föður hans, Ernst Götsch — upphafsmann syntropískrar ræktunar, þar sem margar mismunandi tegundir vaxa þétt saman. Ég segi kannski betur frá því síðar hvað syntropísk ræktun er, en í þessu fréttabréfi langar mig að segja frá nokkru sem Tankred sýndi mér.


Á vínekrum hans í Mergoscia hefur Tankred endurvakið gamla aðferð við ræktun vínviðar: vínviðurinn klifrar ekki upp vírgrind, heldur upp lifandi fylgitré. Vínviður og tré eru klippt til baka á hverjum vetri og þannig undirbúin fyrir næsta vaxtartímabil. Fyrir nokkur hundruð árum var þetta einfaldlega hin venjulega leið til að rækta vínvið. Ítalir kalla þetta vite maritata — eða giftur vínviður.


Tankred fór með mig á gamla ekru þar sem um 90% af vínviðnum var löngu dauður og horfinn. Það merkilega var samt að þau 10% sem lifðu ennþá: hver einasta planta óx upp við tré. Á einhvern hátt hafði samlífið við tréð haldið þeim á lífi, löngu eftir að nágrannar þeirra höfðu gefist upp.


Og þarna stóð ég, einn í allri þessari snyrtilegu einrækt, að vökva í þriðja sinn þetta sumarið, og velti því fyrir mér hversu fáránleg staðan væri. Vínviðurinn vex jú frá náttúrunnar hendi við jaðar skógarins. Hann þróaðist ekki til að klifra upp vír — heldur til að klifra upp tré. Sérhvert víravirki sem við höfum byggt fyrir hann er í raun aðeins bráðabirgðalausn.



Heilsa og langlífi plantnanna eru að sjálfsögðu eitthvað sem hverjum bónda er annt um, en það sem skiptir enn meira máli er hvernig trén hafa áhrif á bragð vínsins. Tréð hefur áhrif á samsetningu örveranna í jarðveginum. Þetta hefur svo aftur áhrif á hvaða steinefni örverurnar skila til trjánna og vínviðsins, og þessi steinefni eru einmitt það byggingarefni sem mólekúl vínsins eru gerð úr.


Við höfum nú þegar gróðursett fjölda trjáa á ekrunum, og ætlum að fjölga þeim verulega næsta vetur. Engin einrækt héðan í frá! Ég hlakka til að geta deilt með þér víni úr þessum „skógarvínekrum" bráðlega.

 
 

Af og til segi ég frá því hvað er að gerast á býlinu hjá okkur - bara stuttar fréttir, vangaveltur og nýjungar.  Skráðu þig endilega fyrir fréttabréfinu til að geta fylgst með!

Hauksson Weine GmbH

Haupstrasse 15, 5235 Rüfenach, Switzerland

©2025 by Hauksson Weine GmbH. | Perónuvernd

bottom of page