Óríon kveður
- hoskuldurhauksson
- Aug 25
- 1 min read

Ég á góðar minningar um vetrarhimininn á Íslandi úr æsku. Ég man eftir því að ganga í skólann á morgnana í desember og janúar. Hluti leiðarinnar að Mýrarhúsaskóla var ekki upplýst og þá voru það aðeins tunglið, stjörnurnar og stundum norðurljósin sem lýstu leiðina. Fyrsta stjörnumerkið sem ég lærði að þekkja var Mjaltarkonurnar þrjár – þrjár bjartar stjörnur í beinni línu sem að mynda belti Óríons.
Mjaltarkonurnar eru áberandi á veturna en með komu vorsins hverfa þær. Á vorin sjást þær aðeins á kvöldin áður en þær hverfa undir sjóndeildarhringinn.
Hinar fornu menningar Grikkja og Egypta fylgdust náið með hreyfingum Óríons. Uppkoma hans á haustin og hvarf á vorin voru notuð til þess að tímasetja ýmis störf í landbúnaði, svo sem uppskeru og sáningu. Nú þegar Óríon hverfur á ný, gengur vorið í garð. Lömbin fæðast, vínviðurinn byrjar að bruma, og heimurinn fyllist aftur af lífi.
Það var því við hæfi að fyrsta lamb þessa árs fékk nafnið Óríon. Móðir hans heitir Stjarna. Óríon fæddist á páskadag ásamt tveimur bræðrum sínum, Krúsí og Skýr.



